Afturhalds-Komma-Tittir

Það er alveg merkilegt hvað umræðan um áfengi í matvöruverslanir er á miklum villigötum. Steingrímur J. og félagar hans í Aftur-Halds-Komma-Titts samtökunum VG, telja að áfengisneysla aukist "gríðarlega" ef áfengi er sett í matvöruverslanir, og að þjóðin komi til með að tortíma sjálfri sér, nái þessi lög fram að ganga.

 

Það er auðvitað ekkert skrítið að liðið í VG skilji ekki hvernig málum er háttað úti á landsbyggðinni. Steingrímur J. er líklega einn af fáum í liði VG sem hefur komið út fyrir 101 Reykjavík.

 

Við getum talið upp nokkra staði þar sem ÁTVR (Vínbúðin) er "inná" öðrum búðum.

  • Vopnafjörður (Inní byggingarvörudeild Kaupfélagsins)
  • Hella (Inní matvöruversluninni Kjarval)
  • Húsavík (Inní Hraðhreinsun)
  • Hvammstangi (Inní Kaupfélaginu)
  • Blönduós
  • Ólafsvík
  • Neskaupstaður (Hver hefur ekki séð myndina Hafið)
  • Kirkjubæjarklaustur (inná bensínstöðinni/sjoppunni)

 

Svo má ekki gleyma höfuðborg allra landsmanna - > Reykjavík (inní Garðheimum í Mjódd)

Svo man ég bara ekki eftir fleiri stöðum í augnablikinu.

 

Geta siðapostular þessa lands, bent á aukna áfengisneyslu ungmenna á þessum stöðum ? (fyrir utan Reykjavík, þar sem áfengisneysla ungmenna er mjög líklega mest, þrátt fyrir þetta svokallaða "takmarkaða aðgengi")

 

Fólk drekkur ef því langar til, ekki vegna þess að bjórinn er við hliðina á mjólkinni í Bónus.

 

Steingrímur J. og fleiri "snillingar" voru á móti því að bjór yrði leyfður á sínum tíma. Getum við sagt að í framhaldi af afnámi bjórbannsins að áfengisneysla íslendinga hafi versnað ?    hugsanlega batnað ?

 

Ég myndi reyndar skjóta á það, að hún hefði batnað. 

 

Ég bendi þess vegna áhugasömum á fyrri færslu mína, sem ég skrifaði 1 mars síðastliðinn ( http://ingo.blog.is/blog/ingo/entry/135560/ )

 

Þetta er að verða álíka absurd og þegar "Villti Villi Vinstri" fv. Borgarstjóri, ætlaði að taka bjórkælinn úr sambandi í Austurstræti til að minnka neyslu landsmanna og þá væntanlega unglingadrykkju í leiðinni.

 

Ef að þetta eru lausnirnar sem menn ætla að beita í þeirri átt að minnka áfengisneyslu og ofdrykkju í landinu, þá held ég að heillavænlegast væri að einbeita sér að forvörnum, í stað þess að einblína á aðgengið.

 

Ekki hefur fíkniefnaneysla minnkað, þrátt fyrir "verulega erfitt aðgengi og bönn".

 

Nei , einbeitum okkur að forvörnum.  Áfengið, dópið og allur pakkin verður til staðar næstu árin. Og allar hugmyndir um frekari takmarkanir eða hindranir, skila akkúrat engu. Ef horft er til þess, að alltaf eru einhverjir sem leiðast útí ofnotkun á þessum efnum. 

 

Góðar Stundir

Sjallinn í Odense


mbl.is Áfengið er komið í matvöruverslanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr Borgarstjóri ?

Eins og flest öllum lesendum síðunnar ætti að vera orðið ljóst, þá er ég Sjálfstæðismaður fram í fingurgóma. Ekki er það útaf pressu frá aðilum í kringum mig eða fjölskyldu, heldur hefur hugsjónin, um frelsi einstaklingsins og almennur kapítalismi átt hug minn allan, síðustu 10 árin.  c_xd

 

Ég verð nú bara að segja það, að ég hef nú ekki verið mesti stuðningsmaður "gamla góða Villa" síðustu mánuði. Ég meina þegar Svandís Svavarsdóttir hjá VG er orðinn talsmaður einstaklingshyggjunar, og segir orðrétt, nánast eins og uppúr Sjálfstæðisstefnunni. Að fara eigi vel með peninga skattgreiðenda. Þá er ekki allt í lagi. Ég átti satt að segja aldrei von á því að pólitíkin myndi snúast svona svaðalega uppí andhverfu sína.

 

En maður hefði svosem getað sagt sér það sjálfur, þegar "gamli góði Villi Vinstri" vildi hætta sölu á bjór í stykkjatali, og taka bjórkæla úr sambandi, að "Det Er Noget Galt i Island". Reyndar beið ég eftir því að hann myndi skipta yfir í VG vegna þeirra mála.

 

Þvílík og önnur eins forræðishyggja og sett var fram í þeim tveimur málum, hefur aldrei sést áður hjá Sjálfstæðismanni. Afhverju er hann ekki búinn að skipta um flokk fyrir löngu síðan ??

 

Síðustu mánuði hef ég alltaf orðið meira og meira sannfærður um það að "Villi vinstri" sé í Sjálfstæðisflokknum af röngum forsendum, ef ekki, þá hefur hann allaveganna aldrei lesið nein plögg eða ályktanir sem komið hafa frá Sjálfstæðismönnum síðustu 50 árin. Þá síður stefnu Sjálfstæðisflokksins.

 

En eins og ég segi, þegar VG er farið að tala hvað hæst um sparnað í ríkisrekstri og almennt sukk í ríkisrekstri, þá er kominn tími til að skipta "Villa Vinstri" út.

 

Mér er í sjálfu sér nákvæmlega sama hver tekur við af Vilhjálmi, bara að hann sjái sóma sinn í því að hætta af sjálfsdáðum. Vona bara að það verði Sjálfstæðismaður og helst Sjálfstæðiskona.

 

Villi er búinn að drulla uppá bak í REI/Geysir málinu, en samt sem áður getur hann komið fram í viðtölum og sagt: "Nei Nei, ég er ekkert að skipta um skoðum". Fyrr má nú vera siðblindan !

 

Versta við þetta allt saman er það, að ég held að einhver hafi verið spila með Villa. Ég hélt nú reyndar að Villi væri nú enginn einfeldningur, en ég er farinn að hallast að öðru.

 

Það eiginlega hlýtur einhver að hafa notað hann sem strengjabrúðu, því ekki var hann að fylgja borgarstjórnarflokknum eða stjórn flokksins. Hver er "Master of Puppets" í þessu máli ?

 

Ég ætla nú ekki að rekja neitt af þessum málum, hvorki bjórkæla, bjórstykkja eða REI/Geysir málið, það er víst búið að vera nóg í fjölmiðlum.

 

En ég var búinn að vona það í allan dag, að borgarstjórnarflokkurinn myndi láta hann fara, en NEI.

 

Nú var nýjasta útspilið hjá borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna, að "púlla" Kristján Möller á þetta. þ.e.a.s. finna einhver óskyldann blóraböggul til að kála. Kristján benti á Skipaverkfræðinginn Einar, sem "Öxul alls ills" í Grímseyjarferjumálinu. Nú leika mínir menn í borginni sama leik, og ætla að benda á stjórnarformann OR, Hauk Leósson , sem "ÖXUL ALLS ILLS " í þessu máli.

 

Eingöngu í þeim tilgangi að reyna að bjarga Villa uppúr svaðinu. Mér myndi aldrei detta í hug að verja það, ég hefði nú bara haldið að mínir menn í borginni ættu nú bara að drullast til að taka ábyrgð í þessu máli.

 

Það þýðir ekkert að þykjast vera í ábyrgðum þegar vel gengur, og ætla svo að slá ryki í augun á fólki þegar erfið mál koma upp, með því að láta rangann mann fara.

 

Ég segi það fyrir sjálfann mig, að ég er hættur að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef það verður ekki einhver sem tekur ábyrgð í þessu máli. Og þá er ekki nóg að láta starfsmann hjá OR fara.

 

Villi verður að taka ábyrgð á þessu klúðri og segja af sér, ekki seinna en strax !!!

 

Góðar Stundir

Sjallinn í Odense


mbl.is Sátt meðal sjálfstæðismanna þrátt fyrir trúnaðarbrest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG og HÁTÆKNI ! Fjarskiptamál og fleira !

 

Meðlimir sértrúarsafnaðarins Saving Iceland, með "predikarann"  Billy, eða hvað hann nú heitir sá ágæti maður, VG og einstaka minni spámenn í Samfylkingunni,  hafa margoft tönglast á því hvað álver séu bráðdrepandi farsótt, og bent á "Hátæknilausnir" í stað gamalla "iðnaðarlausna".

 

Fyrir þá sem ekkert vita um það fyrirbæri sem kallað er "Hátækni" ættu að láta það algjörlega vera að tjá sig með þessum hætti, og uppljóstra þar með heimsku sína og vankunnáttu.

 

Þannig er mál með vexti að það er að mér vitandi enginn munur á því að standa á færibandi í nokia-factory1 rækjuverksmiðju eða á færibandinu í farsímaverksmiðju Nokia til dæmis. Jú, nema þá að annað er svokölluð "hátækni" og hitt telst líklega ekki til hátækni.

 

Mér finnst VG, Saving Iceland og fleiri umhverfisverndarsinnar gjörsamlega búnir að skíta uppá bak í allri álversumræðunni. Við getum alveg verið sammála um það að fallegt land fór undir lón þegar Kárahnjúkavirkjun var byggð, en ég sef alveg á kvöldin yfir því. En við skulum alveg láta það vera að blanda öllu draslinu saman, og tala um allt í sama orðinu.

 

Kárahnjúkavirkjun býr til það sem kallast er þokkalega umhverfisvæn orka, svona miðað við aðra orkugjafa sem í gangi eru í heiminum í dag. Á hinn bóginn er ókosturinn sá að það fer mikið landsvæði undir vatn.

 

Álver er allt annað mál. Álver tekur nú ekki það mikið landsvæði að það séu mikil spjöll af því. En ef við hugum að mengunarhlutanum, þá held ég að mengun frá álveri sé sáralítil.

 

Ef við förum til 3 heims ríkja þar sem álver og virkjanir hafa verið byggð, þá er það deginum ljósara að meiri mengun hlýst af álveri + virkjun sem keyrt er af kolum, heldur en álveri með hæstu hreinsunarstaðla og umhverfisvæna virkjun.

 

Ef þörfin fyrir ál í heiminum er til staðar, þá er skömminni skárra að íslendingar taki þetta að sér, heldur en til að mynda einhver ríki í Afríku. Um leið erum við að minnka mengun, ef á alla heildina er litið, þ.e.a.s. mengun í heiminum.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------- cerro-chico-microwave-link-1 -----------

Nú hefur systurflokkur VG í Þýskalandi skorið upp herör gegn "Hátækni" :

Þráðlausar nettengingar geta verið hættulegar heilsu manna og því ber að varast notkun þeirra hvenær sem

mögulegt er. Þetta kemur fram í svari þýsku ríkisstjórnarinnar við spurningum þingmanna Græningjaflokksins. Einnig er mælt með því að nota jarðtengda síma í stað farsíma, af svipuðum ástæðum.

 

Þarna eru græningjar og stjórnvöld í Þýskalandi að undirbúa afturför um 50 ár, ef hætt verður notkun á þráðlausum aðgangskerfum. Skrítið,  þar sem til að mynda VG á Íslandi hefur barist fyrir bættri fjarskiptaþjónustu.

 

Núverandi fjarskiptakerfi í heiminum nýta að mestu leyti örbylgju og svo ljósleiðarasambönd, til flutnings á lengri leiðum, punkt í punkt. En svo koma GSM sendingar og ýmsar aðrar bylgjusendingar, sem sendar eru staðbundið, þ.e.a.s. með minni útbreiðslu.

 

Ég þykist þekkja soldið til fjarskiptamála, og get alveg tekið undir það, að það geti verið meiri hætta en minni af bylgjum í loftinu. En á sama tíma og talað er um að rafbylgjur séu hættulegar, þá hafa ýmsir landeigendur og fleiri sett sig upp á móti plægingu ljósleiðara strengja í jörðu. Nú þarf fólk að átta sig á því, að ef hætta á að senda merki með bylgjum (í loftinu) og hætta að leggja ljósleiðara, þá er framtíðin ekkert sérstaklega björt hjá Image62 "gæluverkefni" VG, þ.e. fjarskiptamálum.

 

En á sama tíma og fólk krefst betri netsamband, farsímasambands og hvaðeina. Þá eru til aðilar sem eru algjörlega á móti slíku.

 

Gott dæmi er um mann úta landi, sem barðist mikið fyrir bættu GSM sambandi, en þegar til þess kom hvort möguleiki yrði á því að setja loftnet á húsið hjá honum , þá kom annað hljóð í kall. Nei, þá var allt ómögulegt og bæting GSM sambands ekki lengur nauðsynleg.

 

Þetta er meira og minna það sem er gegnum gangandi í þessum bransa, fólk krefst betra sambands, en er alls ekki til í að sjá möstrin eða loftnetin. Gott dæmi um þetta er 18 metra mastur sem Nova ætlaði að setja upp við Stýrimannaskólann í Reykjavík, nei þá spruttu íbúar á fætur og mótmæltu. Þrátt fyrir það að GSM loftnet séu á meira og minna öllum skólabyggingum á höfuðborgarsvæðinu, og krakkarnir ekki kvartað yfir krankleika ennþá !

 

Fyrirtækið Flugfjarskipti, dótturfélag flugstoða eða flugmálastjórnar ef ég man rétt. Er með möstur á Vatnsenda í Kópavogi, nú á að byggja á því svæði og þurfa möstrin að víkja. Búið var að kaupa land einhversstaðar austan fjalls, og eru núna málaferli í gangi , því flugfjarskipti mega ekki setja upp möstur á því svæði sem þeir keyptu, útí sveit. Jú, vegna þess að þau þykja LJÓT, heilsuspillandi, eða hvaða tilliástæður sem fólk kemur með !

lisac3

  

 

Ég held að fólk þurfi að átta sig á því að það er ekki hægt að fá allt fyrir ekki neitt. Fólk vill reglulegt flug til og frá Íslandi, en búnaðurinn sem stýrir fluginu og samskiptum milli flugvéla, fær hvergi að vera á jörðu niðri ! 

 

Þeir sem mest mótmæla bera oft fyrir sig skaðlegum áhrifum rafbylgna á líkamann, á meðan aðrir benda á hversu ljót loftnetin/möstrin eru. En allir eru sammála um að bæta kerfið !!

 

Hvurslags eiginlega hræsni er það !

 

Það er um 600 falt sterkara rafsvið þegar maður er með rafmagnsrakvél í andlitinu á sér, heldur en þegar maður stendur undir háspennulínu ! Rafsviðið er örugglega enn meira þegar menn eru með GSM símann nánast inní hausnum á sér.

 

Ég til að mynda, myndi ekki ganga með bluetooth búnað INNÍ hausnum á mér alla daga, eins og maður sér marga gera, ég vill ekki taka sjénsinn. En að það drepi mann að hafa háspennulínu mörg hundruð metra frá húsinu sínu, stórefast ég um.

Svo handa þeim sem að STÓÐ, þegar þeir lásu bókina Draumalandið. Þá þykir mér rétt að benda á eitt sem Andri Snær segir í bókinni :

,,væri fyrsti hópurinn einmitt núna að ljúka doktorsnámi og landa alþjóðlegum milljarðasamningi fyrir Geimferðastofnun Íslands, alþjóðlegt 300 manna fyrirtæki sem tæki þátt í hönnun, þróun og smíði á fjarskiptahnöttum fyrir alþjóðlegan sjónvarps- og símamarkað."

Þetta er alveg hreint mögnuð lýsing hjá Andra Snæ. Hann, eða félagar hans í Framtíðarlandinu væru þá kannski til í að fá þennan DJÖFUL í garðinn hjá sér, eða í "óspillta antena-villafranca náttúru Íslands" ? ?

Nei, ég hugsa ekki. Enda eins og kaninn sagði: "Not in my backyard !"  

 

Þetta var hugvekja dagsins um mengun, ljótleika og hræsni !

 

Góðar stundir

 

Sjallinn í Odense


Sjallinn í Odense Mættur -> Beittari og Harðskeyttari en nokkru sinni fyrr !!!

Jæja góðir gestir, þá er Sjallinn í Odense kominn úr sumarfríi.

 

Sestur á skólabekk á ný, og frítíminn þar afleiðandi orðinn óþægilega mikill..... og netsambandið meira stabilt.

 

Ég ætla að lofa aðdáendum jafnt sem andstæðingum síðunnar:

"Flugbeittri og sótbölvandi samfélagsrýni af hægri vængnum !"

 

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ég ætla að byrja vetrarvertíðina á því að spjalla aðeins um frétt sem ég sá á RÚV áðan.

Ég tek það fram að þetta eru ekkert sérstaklega vel ígrundaðar hugmyndir sem ég er að skrifa um. 

 

Fréttin fjallaði um manneklu á "Frístundaheimilum" borgarinnar eða sveitarfélaganna. Ég ætla nú að biðja þá sem það vita, að segja mér hvað "Frístundaheimili" er ?

 

Það voru nú sýndar myndir frá einu slíku heimili, og ég sá ekki betur en að þetta hefði verið það sem kallað var á mínum yngri árum "Leikskóli" , það er kannski útdautt orð, og komið fínna orð í staðinn.

Greinilega orðinn gamall, því ekki var neitt til sem hét "Frístundaheimili" í mínum ungdómi.

 

En að kjarna málsins........

 

Það var talað um að erfitt væri að manna stöður á heimilunum. Að það vantaði eitthvað um 160 manns.. Líklega lág laun í þessu, og örugglega töluvert of lág miðað við það sem gengur og gerist á almennum markaði.

  

Nú er ég ekki foreldri, en ef að erfitt er að manna í stöðurnar, hvernig væri þá að foreldrar tækju sig saman og ynnu á þessum heimilum ?

 

Eru foreldrar hissa á því að einhver vilji ekki passa börnin þeirra fyrir 70 þús kjellll á mánuði, á meðan foreldrarnir sjálfir væru ekki til í að fara í þessi störf.

 

Það sem ég er að meina, er það, að nú stafar manneklan fyrst og fremst af gríðarlegri þennslu í samfélaginu og góðum launum í öðrum störfum. Þannig að ég er ekki hissa á því að fólk vilji ekki færa sig um starf og taka á sig að lágmarki 100 þús kr í launalækkun.

 

og eitt vil ég segja við foreldra barna á þessum heimilum,

 

"Ef þið viljið ekki passa börnin ykkar sjálf fyrir 70 þús kr á mánuði, afhverju ætti þá einhver annar að vilja það ? "


Tónleikar Kaupþings - Umfjöllun

Það fór ekki framhjá nokkrum einasta manni að tónleikar Kaupþings voru hinir allra glæsilegustu sem sést hafa hér á landi í háa herrans tíð.

 

Nú ætla ég að fjalla um þá tónlistarmenn sem komu þarna fram:

 

SSSól

Helgi Björns og félagar hafa aldrei svikið mig. Þeir sýndu og sönnuðu að þeir eiga nóg eftir ef þeir vilja spila áfram.

 

Luxor

Byrjuðu allt í lagi, með lögum sem ég þekkti allaveganna ekki. En þegar þeir svo tókum Amazing eftir Lone Star, þá heyrði maður vel hversu djöfull falskir þeir voru. Líklega lélegasta stæling af New Kids on The Block, Take that, Westlife og Backstreet Boys sem komið hefur fram í langann tíma.

En vonandi rætist eitthvað úr þessu hjá þeim.

 

Mugison

Gríðarlega góður á sviðinu, hefur í gegnum tíðina verið að mínu mati ofmetnasti tónlistarmaður landsins, og skipað sér þar með í hóp með ekki ómerkari stjörnum en Björk og Sigurrós.

En á föstudaginn varð ég gríðarlega hrifinn, og algjör snilld að sjá hann með heilu bandi, rokkandi duglega !!!

 

Nylon

Get ekki sagt að ég sé aðdáandi, að mínu mati er þarna ein stelpa sem getur sungið, hinar virðast vera farþegar í bandinu. Þetta var meira eins og að sitja á Karoke bar en að hlusta á "skærustu stjörnur Bretlands eyja". Þegar karoke slagarar á borð við Maneater eftir Nelly Furtado fóru að heyrast, þá setti ég sjónvarpið á MUTE !

 

Todmobile

Voru gríðarlega þétt, og höfðu augljóslega engu gleymt. Andrea Gylfa fannst mér reyndar vera búin að sprengja sig eftir fyrstu 3-4 lögin. En það svosem kom ekkert rosalega að sök.

Todmobile eru náttúrulega samansafn af gríðarlega öflugum og hæfileikaríkum tónlistarmönnum, þannig að það getur svosem aldrei klikkað.

 

Garðar Thór Cortes

Ákvað að fara í sturtu á meðan hann spilaði, sjaldan búið að Hypa upp einn tónlistarmann jafn mikið í fjölmiðlum eins og þennan söngvara. Góður söngvari og allt það, en að þetta sé stórstjarna, það læt ég nú vera.

 

Bubbi Morthens

Var ennþá í sturtu þegar Bubbi byrjaði, og dauðsá eftir því. Bubbi Morthens er ekki kallaður kóngurinn að ástæðulausu. Hann átti gjörsamlega sviðið og crowdið. Ég var þess heiðurs aðnjótandi að fá að taka þátt í fjöldasöngi með Bubba í Eyjum 2005, og ég verð bara að segja, að það væri nær að skipta Árna Johnsen út í brekkusöngnum. Enda kann hann hvorki að spila né syngja, hann er bara þarna af gömlum vana. Og setja Bubba Morthens í brekkusönginn....... alltaf.

Með prógrammið

  • Svartur Afgan
  • Rómeó og Júlía
  • Stál og hnífur

Og setja þessi 3 lög á repeat í 2-3 tíma !!!

 

Stuðmenn

Sönnuðu það enn og aftur að þeir eru útbrunnasta band íslandssögunnar. Skitu gjörsamlega uppá bak lag eftir lag og fengu svo Björgvin Halldórsson á sviðið , sem ég hélt nú reyndar að væri kominn í göngugrind á elliheimili. Stuðmenn er ein af þessum SUDDDDAALLLEGA ofmetnu böndum á landinu. Hafa ekkert getað síðustu tíu árin, en halda samt alltaf áfram !

Ég verð að segja fyrir mitt leyti, að Stuðmenn er að verða helvíti þreyttur brandari, og menn á borð við Jakob Frímann og Egil Ólafsson ættu að fara að finna sér eitthvað annað að gera.

Ég er glaður yfir ölllu því góða sem Stuðmenn hafa gert í gegnum tíðina, enda er það á hreinu að þeir hafa gert margt gott. En nú er nóg komið.

 

Hvort ætli Stuðmenn standi fyrir:

  • Menn sem halda uppi stuði
  • Menn sem stuða !

Ekki veit ég það, en eitt veit ég, það voru margir sem að byrjuðu að rölta heim af tónleikunum þegar "Stuðmenn" voru búnir með sitt fyrsta lag.

 

En á heildina litið snilldar tónleikar í boði Kaupþings !

 

Kveðja

-> GOO GOO og Ingólfur <-


mbl.is Stuðmenn vilja stuða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seint koma sumir, en koma þó....

Nú verð ég að tilnefna Birgi Torfason í samtökunum "Vinir Akureyrar", BESSSSSERWIZZZER ársins 2007 !

 

Það heyrðist ekki mikið í þessum Birgi þegar ákvörðunin kom í síðustu viku, þeir einu sem kvörtuðu yfir þessu voru ýmis hagsmunasamtök ungs fólks. Enda ákvörðunin um að banna ákveðnum aldurshópi að mæta á tjaldsvæðið á Akureyri vægast sagt á gráu svæði hvað varðar mannréttindi.

 

Mér er skítsama hvort bærinn eða einkaaðilar eiga tjaldsvæðin, þetta brýtur klárlega í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Ætli það hefði ekki heyrst í einhverjum ef:

 "Akureyrarbær hefði ákveðið að meina fólki sem væri af erlendu bergi brotið að gista á tjaldsvæðinu, á þeirri forsendu að aukning á glæpum þess fólks, sé að aukast"

 

Eða ef þeir hefðu gengið skrefinu lengra og bannað svörtu fólki eða múslimum að koma á tjaldsvæðið. Hugsanlega verður rauðhærðum bannað að koma næsta sumar.

 

En þessi Birgir var ekkert mikið að gaspra í fjölmiðlum þegar þessi ákvörðun var tekin, enda dauðfeginn að losna við "þennan unga skríl", svo núna eftir helgi þegar það liggur fyrir að ákvörðunin hafði gríðarleg áhrif á kaupmenn í bænum. Þá vaknar Birgir Torfason og lemur með hnefana í borðið. Hver tekur mark á svona bulli ???

 

Vill Birgir að bæjarstjórnin segji af sér, vegna einhvers sem hann var meira en lítið sammála fyrir helgi ?

 

 

Birgir Torfason útnefnist hérmeð "Vitri maður eftirá 2007" af bloggsíðunni ingo.blog.is

 

Góðar Stundir


mbl.is Hvetja til afsagnar bæjarstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælendapakk !!!

Hvenær verða þessir blessuðu mótmælendur reknir úr landi ???? ég bara spyr.

 

"Samtökin segjast vera með þessu að mótmæla stækkun virkjunarinnar, óheiðarlegum viðskiptaháttum Orkuveitu Reykjavíkur og tengslum hennar við stríðsrekstur. Samtökin segja að 30% af framleiddu áli sé selt til hergagnaframleiðslu."

 

Er minna en ekkert vitað !!!

Mótmæla óheiðarlegum viðskiptaháttum OR -> Hvaða óheiðarleika er átt við ?

og tengslum hennar við stríðsrekstur -> Hver er tengingin ?

Samtökin segja að 30% af framleiddu áli sé selt til hergagnaframleiðslu. -> Og hvað ? Getum við að sama skapi sagt að 100% afurða fyrirtækisins Hlað á Húsavík (www.hlad.is) sé "Hergagnaframleiðsla" ?

Getur verið að það sé verið að reyna að klóra í bakkann með svona orðalagi, eingöngu til að finna einhverjar tilliástæður ?

Ef 30% af áli er notað í hergagnaframleiðslu, getum við þá sagt að 30% af hrísgrjónum heimsins sé notað í að fæða hermenn þriðjaheims ríkja ?

Getur verið að hrísgrjónabændur í Afríku beri ábyrgð á ástandinu í Darfúr til að mynda, að ef bændurnir hættu að rækta grjón þá stoppi styrjaldir. Og þá að sama skapi ef við hættum að framleiða Ál að þá stoppi kannski styrjaldir líka ???

 

Nei, ég ætla að vona að það verði tekið hart á þessu hyski og þeir fjölmörgu útlendingar sem gerst hafa brotlegir ár eftir ár við landslög verði hent úr landi og meinað að koma til Íslands !!!

 

Stór hluti þessa hóps virðist vera Bretar, ég bara spyr, getur það pakk ekki bara verið heima hjá sér, væri ekki nær fyrir þá að liggja í bakgarðinum heima hjá sér og mótmæla til að mynda Sellafield, sem er klárlega meiri ógn við umhverfið heldur en nokkurn tíman Hellisheiðarvirkjun.

 

Eitt að lokum, getur þetta 101 kaffihúsalið sem að þvælist með þessum útlendingum drukkið kaffi, vitandi það að bollinn er seldur á 2-3 dollara á meðan bóndinn fær 1 cent ??? Það er meiri ógn við mannréttindi og stuðlar að tvískiptum heimi og fátækt heldur en þau mannréttindabrot sem Rio Tinto á að hafa staðið í.

 

Góðar Stundir

Ingó á Íslandi


mbl.is Mótmælendur loka fyrir umferð að Hellisheiðarvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott - En hvenær verður vitnið nafngreint !!!

Þetta mál sem Erlendur lögmaður Helga Rafns er að fara útí gæti orðið gríðarlega þýðingarmikið fyrir öll tjáskipti á netinu. Ef svo þessir 70 einstaklingar verða sakfelldir og svo auðvitað "vitnið" fræga. Þá komum við hugsanlega til með að sjá bættari hegðun á netinu.

 

Á spjallþráðum Barnalands og fleiri vefja er linnulaust persónuníð látið viðgangast í skjóli nafnleyndar. Gæti verið að þeim persónuárásum komi til með að fækka þegar og ef þessir 70 veiku einstaklingar verða dæmdir ?

 

Ég bíð spenntur eftir niðurstöðu þessa máls, en er hinsvegar orðinn hissa á því að nafn "vitnisins" sem taldi sig sjá Helga sparka í hundinn, skuli ekki vera komið fram. Þannig að hugsanlega 70 manns til viðbótar gætu sent á það morðhótanir fyrir ranga skýrslugjöf !!! hehehe

 

En heimurinn væri betri --> "Ef þessir andskotans ræflar sem skrifa á netið undir dulnefni hefðu loks manndóm í sér að skrifa undir nafni og standa undir þeim orðum sem þau láta útúr sér. Löngu kominn tími til að fólk sem býr til sögur, vegna þess hvað þeirra eigið líf er ÖMURLEGT, skrifi bara undir nafni.........EN ÞAÐ ÞORIR ÞVÍ EKKI !!! "

 

Kveðja

Ingó á Íslandi

 


mbl.is Hyggst fara alla leið með Lúkasarmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundkvikindið Lúkas á lífi !!!

Eftir brjálað fjölmiðlafár og öfgakennd viðbrögð fólks í síðasta mánuði, þá er það komið í ljós að Lúkas er á lífi. Mikið djöfull er ég ánægður að hundkvikindið fannst á lífi.

 

Nú eru ansi margir sem þurfa að hreinsa kúkinn af bakinu, enda nokkuð ljóst að margir fóru offari í umræðunni og skitu allsvaðalega uppá bak, nánast uppá hnakka.

 

Þetta svokallaða "Vitni" sem átti að hafa séð nafngreindann strák drepa hundinn er örugglega miður sín núna yfir því að hundurinn skyldi finnast á lífi. "Vitnið" reyndi að hafa æruna af stráknum og hafði umtalsverð áhrif í þá átt. Allaveganna voru fjölmargir nafngreindir hundaeigendur sem að misstu sig í umræðunni og dæmdu strákinn eftir einu leiðinni sem þau þekkja, Dómstóli Götunnar !

 

Er það ekki skýlaus krafa almennings að "Vitnið" stígi fram og útskýri hvað því gekk til með þessari lygasögu ??

 

Ég hefði talið að "Vitnið" yrði maður að meiri ef það kæmi fram í fjölmiðlum undir nafni og útskýrði sína hlið málsins. Væri það til í að lenda í svipaðri orrahríð og strákurinn sem dæmdur var fyrir fram lenti í ? ?

 

Getur hvaða fífl sem er búið til LYGASÖGU og fengið hana birta í öllum fjölmiðlum landsins án þess að hafa nokkuð fyrir sér í málinu ??

 

Ég vil benda á grein sem ég skrifaði í maí, sem fjallar um það þegar "Öfgarnar ganga útí öfgar" http://ingo.blog.is/blog/ingo/entry/212061/

 

Verum ekki svona fljót að dæma, leyfum lögreglunni að vinna sína vinnu. En umfram allt vona ég að strákurinn sem ásakaður var í þessu máli fái uppreisn æru og kæri "Vitnið" og þá sem mest höfðu sig frammi í umræðunni.

 

Fólk á ekki að komast upp með að níða æru manna niður í svaðið án þess að það hafi einhverjar afleiðingar í för með sér.

 

Þessvegna hefði ég talið að eigandi Lúkasar ætti að gefa upp hver þetta svokallaða "Vitni" er !!!

 

Fjölmiðlar hafa allaveganna ekki hækkað í áliti hjá mér eftir þessi upphlaup. Og einhverja hluta vegna tekið allt trúanlegt sem komið hefur frá "Vitninu" og eiganda hundsins.

 

Öfgakenndari viðbrögð hefur maður ekki séð hjá almenningi í langan tíma. En þetta er langt í frá síðasta skiptið sem þetta kemur til með að gerast.

 

kveðja

Sjallinn í Odense


mbl.is Hundurinn Lúkas á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættiði með þessar fréttir !!!

Hverjum er ekki drullu fokkings sama um það hvort Lindsay Lohan, París Hilton, Britney Spears eða einhverjir aðrir SKINKUSTRIMLAR séu að taka sig á í lífinu eða ekki.

 

Hvort þær séu brókarlausar á djamminu (líkt og 20-30% ísl. kvenna) skiptir bara engu máli, og er ekki fréttnæmt. Þær geta verið brókarlausar alla daga fyrir mér. Þeirra ákvörðun.

 

Þetta lið hefur hvorteðer verið brókarlaust meira og minna frá fermingu !!!

 

Þetta er gjörsamlega orðið yfirgengilegt rugl, og fréttamiðlar apa upp hverja vitleysuna á fætur annari. Hvaða hlutverki eru fjölmiðlar að þjóna, með því að birta þessar fréttir ?

 

OK. Ég get vel skilið að það sé sagt frá því ef eitthvað alvarlegt gerist, að þá sé fjallað um það. En þegar það er ekki verið að segja neinar fréttir, þá á að sleppa því.

 

En í Íslensku samfélagi þá eru auðvitar kjaftasögurnar og bullið það eina sem selur.

 

Hver hefur til að mynda ekki séð hetjuviðtöl við þekkta tónlistarmenn á borð við íslenska trúbadora combóið "Kók og Spítt" (annar var í Idol, hinn í Sk**ó). Þar sem kemur fram að nú sé búið að snúa baki við hinu og þessu og nýr lífstíll tekinn upp.

 

Hverjum er ekki drullusama hvort þeir eða einhverjir aðrir snúa við blaðinu eða ekki. Gott ef þeir gera það, skítsama ef þeir gera það ekki !!!

 

En þessi fréttamennska er orðin fyrir neðan allar hellur, og finnst mér að það ætti að hætta henni sem fyrst.

 

Ef það telst fréttnæmt, og kemst á mbl.is að Lindsay Lohan gangi vel í meðferð, afhverju er það þá ekki fréttnæmt ef að einhverjum íslenskum glaumgosa gangi vel í meðferð ??  jú af því að þá er verið að ráðast á persónufrelsið og einkamál fólks.

 

Er ekki verið vegið að persóu Lindsay Lohan til að mynda með þessum fréttaflutningi ??

Að sjálfsögðu, þó svo að hún geti ekki lesið þetta, þá hugsa ég að þekktur íslendingur væri ekki sáttur með svona umfjöllun.

 

Þetta andskotans pakk má éta skít fyrir mér, halda áfram að dópa ef það vill og drekka og ríða og hvað sem er. Það er ekki fréttnæmt. Sama hvort það er þekkt fólk í USA eða á Íslandi !!!!


mbl.is Michael Lohan segir dóttur sína hafa þegið leiðsögn Guðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ingólfur Þór Guðmundsson

Höfundur

Ingólfur Þór Guðmundsson
Ingólfur Þór Guðmundsson

 

Á ekkert að...... FOKKINGS FINNA Á SÉR !!!!!

 

 

 

 

Staða: Nemi

Staðsetning: Odense, DK

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 38301

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Bloggvinir

Trackerinn

Tracker

eXTReMe Tracker

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband