31.10.2007 | 11:47
Afturhalds-Komma-Tittir
Það er alveg merkilegt hvað umræðan um áfengi í matvöruverslanir er á miklum villigötum. Steingrímur J. og félagar hans í Aftur-Halds-Komma-Titts samtökunum VG, telja að áfengisneysla aukist "gríðarlega" ef áfengi er sett í matvöruverslanir, og að þjóðin komi til með að tortíma sjálfri sér, nái þessi lög fram að ganga.
Það er auðvitað ekkert skrítið að liðið í VG skilji ekki hvernig málum er háttað úti á landsbyggðinni. Steingrímur J. er líklega einn af fáum í liði VG sem hefur komið út fyrir 101 Reykjavík.
Við getum talið upp nokkra staði þar sem ÁTVR (Vínbúðin) er "inná" öðrum búðum.
- Vopnafjörður (Inní byggingarvörudeild Kaupfélagsins)
- Hella (Inní matvöruversluninni Kjarval)
- Húsavík (Inní Hraðhreinsun)
- Hvammstangi (Inní Kaupfélaginu)
- Blönduós
- Ólafsvík
- Neskaupstaður (Hver hefur ekki séð myndina Hafið)
- Kirkjubæjarklaustur (inná bensínstöðinni/sjoppunni)
Svo má ekki gleyma höfuðborg allra landsmanna - > Reykjavík (inní Garðheimum í Mjódd)
Svo man ég bara ekki eftir fleiri stöðum í augnablikinu.
Geta siðapostular þessa lands, bent á aukna áfengisneyslu ungmenna á þessum stöðum ? (fyrir utan Reykjavík, þar sem áfengisneysla ungmenna er mjög líklega mest, þrátt fyrir þetta svokallaða "takmarkaða aðgengi")
Fólk drekkur ef því langar til, ekki vegna þess að bjórinn er við hliðina á mjólkinni í Bónus.
Steingrímur J. og fleiri "snillingar" voru á móti því að bjór yrði leyfður á sínum tíma. Getum við sagt að í framhaldi af afnámi bjórbannsins að áfengisneysla íslendinga hafi versnað ? hugsanlega batnað ?
Ég myndi reyndar skjóta á það, að hún hefði batnað.
Ég bendi þess vegna áhugasömum á fyrri færslu mína, sem ég skrifaði 1 mars síðastliðinn ( http://ingo.blog.is/blog/ingo/entry/135560/ )
Þetta er að verða álíka absurd og þegar "Villti Villi Vinstri" fv. Borgarstjóri, ætlaði að taka bjórkælinn úr sambandi í Austurstræti til að minnka neyslu landsmanna og þá væntanlega unglingadrykkju í leiðinni.
Ef að þetta eru lausnirnar sem menn ætla að beita í þeirri átt að minnka áfengisneyslu og ofdrykkju í landinu, þá held ég að heillavænlegast væri að einbeita sér að forvörnum, í stað þess að einblína á aðgengið.
Ekki hefur fíkniefnaneysla minnkað, þrátt fyrir "verulega erfitt aðgengi og bönn".
Nei , einbeitum okkur að forvörnum. Áfengið, dópið og allur pakkin verður til staðar næstu árin. Og allar hugmyndir um frekari takmarkanir eða hindranir, skila akkúrat engu. Ef horft er til þess, að alltaf eru einhverjir sem leiðast útí ofnotkun á þessum efnum.
Góðar Stundir
Sjallinn í Odense
|
Áfengið er komið í matvöruverslanir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ingólfur Þór Guðmundsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 38468
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Tenglar
Daglegi Rúnturinn
Flokkarnir
Bloggvinir
-
Heiðrún Lind
-
Ólöf Nordal
-
Helgi Seljan
-
Bjarni Harðarson
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Ómar Ragnarsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Hlynur Hallsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Dofri Hermannsson
-
Guðfríður Lilja
-
Andrés Magnússon
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Arnljótur Bjarki Bergsson
-
Sóley Tómasdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Hrafn Jökulsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Björk Vilhelmsdóttir
-
Pálína Erna Ásgeirsdóttir
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
-
Vilborg G Hansen
-
Sigurjón M. Egilsson
-
Alma Joensen
-
Vigdís Sigurðardóttir
-
Erla Skarphéðinsdóttir
-
Björn Ingi Hrafnsson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Eva Kamilla Einarsdóttir
-
Halldór Baldursson
-
Andrés Rúnar Ingason
-
Jónas Björgvin Antonsson
-
Borgar Þór Einarsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Pétur Gunnarsson
-
Snorri Bergz
-
Júlíus Valsson
-
Agný
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Hildur Sif Kristborgardóttir
-
Guðríður Arnardóttir
-
Ellý Ármannsdóttir
-
Andrés Jónsson
-
Formaðurinn
-
Guðrún Björk
-
Alcan dagbókin
-
Einar Kristinn Guðfinnsson
-
Áslaug Helga Hálfdánardóttir
-
Finnur Torfi Gunnarsson
-
Vilhjálmur Andri Kjartansson
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Eyþór Arnalds
-
Mist
-
Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir
-
Fannar frá Rifi
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Jakob Smári Magnússon
-
Halldór Sigurðsson
-
Örvar Þór Kristjánsson
-
Davíð Örn Ólafsson
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Hrannar Baldursson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Maron Bergmann Jónasson
-
Tómas Þóroddsson
-
Killer Joe
-
Stjórnmál
-
íd
-
Þórður Ingi Guðmundsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
Bleika Eldingin
-
Lára Stefánsdóttir
-
Sigurður G. Tómasson
-
Ólafur Örn Nielsen
-
Ólafur N. Sigurðsson
-
Ester Júlía
-
Jórunn Sigurbergsdóttir
-
Elvar Atli Konráðsson
-
Sigurjón
-
Karólína Anna Snarska
-
Kolla
-
Anna Lilja
-
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
-
Hafdís Ragna Rúnarsdóttir
-
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
-
Friðjón R. Friðjónsson
-
Svava frá Strandbergi
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Auður Björk Guðmundsdóttir
-
Auður Eva Auðunsdóttir
-
Einar Ben Þorsteinsson
-
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Eyrún Björk Jóhannsdóttir
-
Garðar Valur
-
Helga Lára Haarde
-
Júlíus Brjánsson
-
Kristín María
-
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir
-
Sunna Kristín Hilmarsdóttir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
-
Vefritid
-
Vilborg Einarsdóttir
-
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir


Athugasemdir
Ég vildi minna að á Reyðarfirði er VÍNbúð í krónunni innan af veiðiflugunni sem að meðal annars selur skotvopn.
Auðbergur D. Gíslason
14 ára Sjálfstæðismaður
Auðbergur Daníel Gíslason, 31.10.2007 kl. 14:23
Bíddu nú við Ingólfur, var það ekki Davíð Odds sem kallaði Samfylkinguna "Afturhalds-Komma-Titti"? Það er einmitt gengið sem er að leggja þetta frumvarp fram:) Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 31.10.2007 kl. 23:31
jújú nákvæmlega !
Ingólfur Þór Guðmundsson, 31.10.2007 kl. 23:33
Málið er að aðgengi er ágætt eins og staðan er í dag. Kannski mætti leyfa einkaaðilium að selja bús í sérverslunum.....en það er einfaldlega ekki þess virði að skoða þetta með matvörubúðirnar....end of story.
Einar Ben Þorsteinsson, 6.11.2007 kl. 10:32
Gleymdir Seyðisfirði. Þar er vínbúðin inn í Shell bensínstöðinni.
Hallgrimur Viðar Arnarson (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 11:35
Mér virðist þessi málflutningur Ingólfs byggjast einna helst á víndýrkun og lítill skilningur á heildarmyndinni vera að baki.
Fyrsta lagi er þetta frumvarp óþarfi þar sem aðgengi er orðið afar gott (sbr. lista þinn hérna að ofan)
Öðru lagi hefur þetta aukna aðgengi valdið því nú þegar að neyzla hefur aukist um 39% síðan 1991. Bein afleiðing fleiri útsölustaða og víðari opnunartíma. Hún hefur ekki aukist bara hjá fólki sem er komið yfir tvítugt heldur á öllum aldri.
Þriðja lagi snýst þetta frumvarp ekkert um frelsi einstaklinganna. Þetta snýst um að koma allri áfengisverslun ríkisins yfir á hendur fárra auðmanna. Fylla vasa þeirra en frekar.
Mér finnst ómálefnalegt að bendla andstæðinga frumvarpsins við siðapostula eða alkóhólista því bláköld staðreyndin er sú að aukin meðaltalsdrykkja á hvern haus í þjóðfélaginu kostar samfélagið gríðarlegt fjármagn á mjög mörgum sviðum þess.
Svo Ingólfur, prófaðu að taka tilfinningarnar úr myndinni, kynna þér rannsóknir og málefnalegan flutning kommatittanna (sem eru úr öllum flokkum þar sem þetta er þverpólitískt mál) annars vegar og rökleysuna sem flutningsmennirnir halda fram hins vegar. Byrjaðu t.d. hérna.
Páll Geir Bjarnason, 14.1.2008 kl. 04:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.